Yora Dog Adult Small Breed – 6kg

12.550kr.

Fullkomið skordýrafóður fyrir smærri tegundir.

  • Hypoallergenic
  • Sérstaklega bragðgóðar olíur fyrir fussy hunda
  • Bætt liðumhirða fyrir viðkvæma liði
  • Mikið af andoxunarefnum

Á lager

Vefverslun: Á lagerSmáralind: Á lagerKringlan: Á lagerGrafarvogur: Á lagerReykjanesbær: Ekki til á lagerAkranes: Á lager
Flokkar: Vörunúmer: ISB6

Ótrúlegu litlu lirfurnar okkar (hermetia illucens lirfur) eru algjör ofurfæða, stútfullar af hollu próteini, fitu, steinefnum og ónæmisstyrkjandi andoxunarefnum.

Þetta fóður er í fullkomnu jafnvægi með höfrum og kartöflum, ásamt meltingargerlum, bláberjum og grasaafurðum til þess að búa til, ljúffenga, stökka bita sem bragðast eins vel og þeir líta út.

Nýtt protein fyrir ófnæmispésa
Lirfurnar okkar eru eins auðmeltanlegar og kjúklingur, svo fóðrið er fullkomið fyrir hunda með viðkvæman maga.
Mælt með af dýralæknum fyrir hunda með fæðuóþol.

Andoxunarefni fyrir ónæmiskerfið
Lirfurnar okkar eru stútfullar af andoxunarefnum, sem sýnt hefur verið fram á að draga úr skaðlegum bólgu- og ónæmissvörun hjá hundum.

Heilbrigðir liðir & bein
Hvert kíló af skordýramjöli inniheldur 37.000mg af glúkósamíni fyrir heilbrigða liði og sinar, og lirfurnar eru ríkar af kalsíum og fosfór fyrir sterkar tennur og bein!

Þarmaheilsa
Lirfurnar innihalda örverueyðandi peptíð og kítín, sem vinnur saman við að stuðla að heilbrigðri þarmaflóru og draga úr óæskilegum bakteríum fyrir fullkominn kúk.

Heilbrigð fita fyrir líkama og heila
Skordýrafita er kraftaverks innihaldsefnið okkar. Lirfurnar eru ríkar af hollri fitu eins og laurínsýru sem er frábær fyrir húð, feld og heila.

Innihald: *Skordýr 43% (Skordýramjöl 27,5%, fersk skordýr 8.5%, skordýraolía 7%), kartöflur (20%), naktir hafrar (18%), rauðrófuhold (5%), steinefni, grænmetiskraftur, brewer’s yeast, hörfræ, kartöfluprótein, þangamjöl (0,5%), kaffifífill (sem uppspretta forlífrænna FOS) (0,1%), kondroitín (500 mg/kg), þurrkað spínat (0,05%), þurrkað bláber (0,05% ), þurrkuð gulrót, þurrkuð netla, þurrkuð steinselja, þurrkað rósmarín, túrmerik (0,005%), þurrkuð spearmint. *Hermetia illucens lirfur
Efnagreining: Prótein 25%, fita 15%, trefjar 5,5%, aska 8%, omega6 2,5%, omega3 1%, kalsíum 1%.
360,6 kcal/100g.
Vítamín: A-vítamín 17.000 ae, D3-vítamín 1.500 ae, E-vítamín 70 mg. Snefilefni: Sink (sinkoxíð) 100 mg, járn (járn (II) súlfat einhýdrat) 60 mg, mangan (mangan (II) oxíð) 50 mg, kopar (kopar (II) súlfat pentahýdrat) 8 mg, joð 2.5mg, selenium (Natríum Selenite) 0,1mg.