Ferðalag
Rétti búnaðurinn skiptir máli í ferðalögum með gæludýr.
Ferðalög með gæludýr verða bæði öruggari og þægilegri þegar réttur búnaður er meðferðis. Dýr ætti aldrei að vera laus í bílnum, heldur í ferðabúri eða með viðurkenndu bílbeisli.
Mikilvægt er að hafa alltaf ferskt vatn, ferðaskál, fóður, taum, kúkapoka og handklæði við höndina. Kunnuglegt teppi eða leikfang getur einnig hjálpað dýrunum að slaka á í nýju umhverfi.
Dýr sem verða óróleg í bíl geta þurft meiri undirbúning, styttri æfingaferðir og róandi ferðavörur.
Með góðum undirbúningi og réttum búnaði verður ferðalagið öruggara og skemmtilegra fyrir bæði gæludýr og eiganda.
Finndu ferðabúnað fyrir hundinn þinn hjá Dýrabæ.
Skoðaðu bæklinginn okkar og við aðstoðum þig við að undirbúa ferðalagið
Bæklingur: Ferðalag með dýrunum okkar