Þessi síða styður ekki vafrann þinn. Við mælum með að þú skiptir yfir í Edge, Chrome, Safari eða Firefox.

Frí heimsending um allt land af pöntunum yfir 5.000kr

Veldu ást í skálina

Gott fóður skiptir öllu máli

Karfan þín 0

Til hamingju! Pöntunin þín á rétt á fríum sendingarkostnaði. Bættu 5.000 kr í körfuna til að fá ókeypis heimsendingu.
Því miður, en við höfum ekki nóg af þessari vöru.

Paraðu við
Samtals Ókeypis
Skoða körfu
Sendingarkostnaður, skattar og afsláttarkóðar eru reiknaðir út við greiðslu

Umhverfisstefna

Virðing fyrir umhverfi okkar, dýrum og náttúru landsins er okkur hjartans mál og því leggjum við áherslu á að umgangast hvort tveggja af virðingu.

Þess vegna ætlum við að vera í fararbroddi með náttúrulegar, umhverfisvænar og aukefnalausar vörur fyrir gæludýr og jafnframt að uppfylla gildandi lög og reglugerðir á sviði umhverfismála.

Áherslur Dýrabæjar í umhverfismálum eru:

  • að vera í fararbroddi með náttúrulegar, umhverfisvænar og aukefnalausar vörur fyrir gæludýr
  • að uppfylla kröfur í lögum og reglugerðum um umhverfismál
  • að flokka allan úrgang frá fyrirtækinu
  • að nota eingöngu vistvæn hreinsiefni þar sem því verður við komið
  • að vera meðvituð um umhverfismál almennt
  • að kappkosta að hafa snyrtimennsku í fyrirrúmi og vera öðrum til fyrirmyndar í þeim efnum
  • að vera dýravænn staður þar sem áhersla er lögð á vellíðan gæludýra í lifandi og skemmtilegu umhverfi
  • að vera eigendum gæludýra til ráðgjafar um heilnæmar umhverfisvænar vörur, sem styðja við almennt heilbrigði þeirra og vellíðan
  • að hvetja eigendur gæludýra til þrifnaðar í kringum dýrin og gæta þess að þau valdi ekki óþrifnaði með umgengni sinni
  • að umhverfisstefnan og framkvæmd hennar sé sýnileg almenningi og verði þannig öðrum hvatning til að leggja sitt af mörkum, til að vernda umhverfið fyrir komandi kynslóðir.

"Gæði, heiðarleiki, velferð dýra og virðing fyrir náttúrunni"