Þessi síða styður ekki vafrann þinn. Við mælum með að þú skiptir yfir í Edge, Chrome, Safari eða Firefox.

Frí heimsending um allt land af pöntunum yfir 5.000kr

Veldu ást í skálina

Gott fóður skiptir öllu máli

Karfan þín 0

Til hamingju! Pöntunin þín á rétt á fríum sendingarkostnaði. Bættu 5.000 kr í körfuna til að fá ókeypis heimsendingu.
Því miður, en við höfum ekki nóg af þessari vöru.

Paraðu við
Samtals Ókeypis
Skoða körfu
Sendingarkostnaður, skattar og afsláttarkóðar eru reiknaðir út við greiðslu

GimCat Derma Paste - 50g

1.990 kr
(#GF6371)

Þessi vara er aðeins til í verslun

Þessi vara er ekki í boði í heimsendingu. Þú getur sótt hana í eftirfarandi verslunum:

    Ef þú heldur áfram fer varan í körfuna en hana þarf að sækja í verslun. Hún sendist ekki heim.

    GimCat Expert Line
    Derma Paste, fyrir feld og viðkvæma húð
    Nutritive-Support formúla úr kvöldvorrósarolíu, klórellaþörungum og bíótíni

    Feldurinn og húðin endurspegla heilsu kattarins. Vöntun á ákveðnum vítamínum eða fitusýrum getur birst sem þurr húð, daufur feldur eða aukið hárlos. Derma Paste er sérhönnuð fyrir ketti með viðkvæma húð og styður undir áferð, styrk og glans á feldinum dag frá degi.

    GimCat er framleitt af þýska fjölskyldufyrirtækinu Gimborn í Bæjaralandi og hefur sérhæft sig í kattaumhirðu í áratugi.

    Kvöldvorrósarolía (4%), omega-3 og omega-6 fyrir þurra húð
    Evening primrose olía er rík af omega-3 og omega-6 fitusýrum. Línólen sýran sem hún inniheldur er hráefnið sem kettir nota sjálfir til að framleiða arachidonic sýru, sem styður við hárvöxt og nærir húðina að innan.
    Klórellaþörungar (4%) og betaglúkan (1,1%)
    Klórella er næringarrík grænþörungur sem skilar steinefnum og snefilefnum. Betaglúkan úr ger virkar róandi á húðina og gefur formúlunni dýpt umfram einfalda fitusýruuppbót.
    Bíótín (40.000 mcg/kg) og sink (99 mg/kg)
    Saman styðja bíótín og sink við teygjanleika, styrk og útlit á feldi og húð. Bíótíninnihaldið er hátt og er á pari við sérhæfð húð- og feldsbætiefni.
    B-vítamín og E-vítamín fyrir frumustarfsemi
    B1, B2, B6 og B12 styðja við húðstarfsemi og umbrot, og 2.000 mg E-vítamín á hvert kíló er öflugt náttúrulegt andoxunarefni sem ver fitusýrurnar í feldinum gegn skemmdum.
    L-tryptófan (9.340 mg/kg), ró og jafnvægi
    Tryptófan er amínósýra sem líkaminn nýtir í myndun serótóníns. Ró og jafnvægi spila þátt í heilbrigðri húð, sérstaklega hjá köttum sem strjúka eða sleikja sig óhóflega.
    Þýsk gæði, án viðbætts sykurs, tilbúinna lita- og bragðefna
    Framleitt í Þýskalandi af Gimborn samkvæmt formúlu sem hefur verið sett saman fyrir ketti með viðkvæma húð.

    Notkun: Fer eftir næringarstöðu kattarins. Á meðan einkenna gætir má gefa allt að 12 cm af kreminu á dag (1 cm jafngildir um 0,5 g). Þegar einkenni eru horfin nægja 8 cm á dag til viðhalds. Gefið beint úr túpunni, af puttanum eða hrært í matinn. Hentar fyrir alla ketti yfir 1 árs aldri.

    Geymist á köldum stað eftir opnun.

    Sendum samdægurs - pantaðu fyrir kl 11

    Frí heimsending um allt land fyrir pantanir yfir 5.000 kr.

    Auðvelt að skila/skipta - þín ánægja er í fyrirúmi

    Gæðastimpill Dýrabæjar - Engin málamiðlun á innihaldi

    Staða í verslunum
    Vefverslun
    Til á lager
    Til á lager
    Akranes, Smáralind, Akureyri, Kringlan, Krossmói, Spöng
    Uppselt
    [{"variant_id":"51514268942648" , "preorder":"false" , "final_sale":""}]
    Nánari upplýsingar

    Tegund: Húð- og feldsmauk fyrir ketti (1 árs og eldri)

    Aðalinnihaldsefni: Kvöldvorrósarolía (4%), klórellaþörungar (4%), betaglúkan (1,1%)

    Séreiginleikar: Bíótín 40.000 mcg/kg, sink 99 mg/kg, E-vítamín 2.000 mg/kg, B-vítamínblanda, L-tryptófan, omega-3 og omega-6 fitusýrur

    Hentar fyrir: Ketti með viðkvæma húð, þurran feld eða óhóflegan hárlos. Allir kettir 1 árs og eldri.

    Skammtur: Allt að 12 cm á dag á meðan einkenni eru til staðar, 8 cm til viðhalds (1 cm = 0,5 g)

    Án: Viðbætts sykurs, tilbúinna litar- og bragðefna

    Upprunaland: Þýskaland

    Stærð: 50 g túpa

    Innihaldsefni

    Innihald: Derivatives of vegetable origin, oil and fats (evening primrose oil 4%), 31.8% algae (Chlorella algae 4%), milk and dairy products, yeasts (contains beta glucan 1.1%).

    Næringargildi: Prótein 7,5%, fita 36,5%, trefjar 1,5%, hráaska 6%, raki 12%, omega-3 fitusýrur 0,7%, omega-6 fitusýrur 16,1%.

    Viðbætt næringarefni á 1 kg: E-vítamín 2.000 mg, B1-vítamín 80 mg, B2-vítamín 60 mg, B6-vítamín 40 mg, B12-vítamín 280 mcg, bíótín 40.000 mcg, L-tryptófan 9.340 mg, sink (sem zinc sulphate monohydrate) 99 mg.

    Sendingarmáti

    Ókeypis heimsending

    Ef keypt er fyrir meira en 5.000 kr. er hægt að fá pöntunina senda ókeypis heim.

    Afhending vöru

    Allar vörur eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Komi pöntun inn fyrir kl 11:00 gerum við okkar besta til að pöntunin sé keyrð heim samdægurs.

    GimCat

    Þýskt gæðanammi fyrir ketti

    Vinsælt kattanammi framleitt hjá Gimborn á Þýskalandi síðan 1965. Krem, stangir, stökk snakk, hárboltakaka og vítamíntöflur sem kettir elska og treysta má.

    Skoða GimCat úrvalið
    GimCat

    1855

    Rótgróin saga

    Gimborn var stofnað árið 1855 af lyfjafræðingnum Heinrich von Gimborn í Emmerich am Rhein. Kattavörur hafa verið þróaðar hjá fyrirtækinu síðan 1965.

    DE

    Made in Germany

    Öll GimCat nammi er framleitt í verksmiðjunni í Emmerich am Rhein, ISO 9001 vottað og þróað í samstarfi við dýralækna.

    0

    Sykur og rotvarnarefni

    Engin viðbættur sykur, engin tilbúin litar eða bragðefni og engin rotvarnarefni. Bara vandað nammi með fiskolíum og jurtaolíum.

    40+

    Lönd og markaðsleiðtogi

    GimCat vörur eru seldar í meira en 40 löndum og í Þýskalandi er Gimborn markaðsleiðtogi í helstu flokkum kattasnakks.

    GimCat

    Af hverju GimCat?

    Saga GimCat nær aftur til ársins 1855 þegar lyfjafræðingurinn Heinrich von Gimborn stofnaði lyfjaverksmiðju í Emmerich am Rhein í Þýskalandi. Árið 1965 þróaði fyrirtækið fyrstu laktósalausu mjólkina fyrir kettlinga og hefur síðan þá sérhæft sig í kattanæringu sem er hönnuð í samstarfi við dýralækna og byggð á áratuga reynslu.

    Í dag er GimCat vinsælasta kattanammið í Þýskalandi og markaðsleiðandi í helstu flokkum. Úrvalið nær frá Every Day kremunum sem hægt er að gefa úr höndinni eða bæta í fóðrið, Expert Line premium kremunum fyrir hvert lífsskeið, Duo kremunum fyrir hárbolta og vítamín, Nutri Pockets stökku snakki með mjúkri fyllingu, sérstökum kattagrösum fyrir meltinguna, vítamíntöflum og Shiny Cat blautfóðri í dósum. Allt án viðbætts sykurs, rotvarnarefna eða tilbúinna litarefna.

    Skoða GimCat úrvalið
    Dýrfinnur