Þessi síða styður ekki vafrann þinn. Við mælum með að þú skiptir yfir í Edge, Chrome, Safari eða Firefox.

Frí heimsending um allt land af pöntunum yfir 5.000kr

Veldu ást í skálina

Gott fóður skiptir öllu máli

Karfan þín 0

Til hamingju! Pöntunin þín á rétt á fríum sendingarkostnaði. Bættu 5.000 kr í körfuna til að fá ókeypis heimsendingu.
Því miður, en við höfum ekki nóg af þessari vöru.

Paraðu við
Samtals Ókeypis
Skoða körfu
Sendingarkostnaður, skattar og afsláttarkóðar eru reiknaðir út við greiðslu

GimCat UT Balance Pasta - 50g

1.990 kr
(#GF6389)

Þessi vara er aðeins til í verslun

Þessi vara er ekki í boði í heimsendingu. Þú getur sótt hana í eftirfarandi verslunum:

    Ef þú heldur áfram fer varan í körfuna en hana þarf að sækja í verslun. Hún sendist ekki heim.

    GimCat UT Balance Paste
    Daglegt mauk sem styður við heilbrigt sýrustig í þvagi

    Þvagfæri katta eru viðkvæm. Ef sýrustig þvagsins fer úr jafnvægi geta fosfór og oxalat safnast saman og myndað kristalla sem oft eru undanfari þvagsteina. UT Balance Paste er fyrirbyggjandi mauk sem er gefið með daglegri fæðu og hjálpar til við að halda þvagi í eðlilegu sýrustigi.

    GimCat er hluti af þýska fjölskyldufyrirtækinu H. von Gimborn, sem hefur sérhæft sig í gæludýrabætiefnum frá 1855. Expert Line er sérstök lína fyrir markvissan stuðning við ákveðin heilsumarkmið.

    N-acetýl-glúkósamín (0,42%)
    Glúkósamín er byggingarefni glýkósamínóglýkana, verndarlagsins sem klæðir innra borð þvagblöðrunnar. Sterk slímhúð gerir kristöllum erfiðara að festast og safnast saman.
    Beta-glúkanar úr geri (1%)
    Náttúrulegir trefjar sem bindast fosfóri og oxalati í meltingarveginum og draga úr því magni þeirra sem skilst út um þvag. Þannig er minna efni eftir til að mynda kristalla.
    L-tryptófan (12.500 mg/kg)
    Amínósýra sem hefur róandi áhrif á taugakerfið. Streita er einn af þekktum áhættuþáttum fyrir þvagfæravandræði hjá köttum, og rólegri köttur drekkur betur.
    Án viðbætts sykurs og laktósa
    Bragðmikið mauk sem flestir kettir taka beint úr túpunni án vandkvæða. Hentar fullorðnum köttum frá eins árs aldri.
    Þýsk gæði
    Framleitt í Þýskalandi af Gimborn samkvæmt ströngum gæðastöðlum.

    Skammtastærð

    Um 6 cm af mauki á dag (1 cm jafngildir um 0,5 g). Gefið beint úr túpunni, af fingri eða blandað saman við matinn. Best við stofuhita.

    Næringargildi

    Prótein 5,5%
    Fita 34,0%
    Trefjar 1,5%
    Aska 4,5%
    Raki 12,5%

    Ef kötturinn sýnir merki um þvagfæravandræði, tíð klósettferðir, áreynsla við þvaglát eða blóð í þvagi, skal leita til fagmanns. Bætiefni kemur ekki í stað meðferðar á virkum vandamálum.

    Sendum samdægurs - pantaðu fyrir kl 11

    Frí heimsending um allt land fyrir pantanir yfir 5.000 kr.

    Auðvelt að skila/skipta - þín ánægja er í fyrirúmi

    Gæðastimpill Dýrabæjar - Engin málamiðlun á innihaldi

    Staða í verslunum
    Vefverslun
    Til á lager
    Til á lager
    Akranes, Smáralind, Akureyri, Kringlan, Krossmói, Spöng
    Uppselt
    [{"variant_id":"51514269073720" , "preorder":"false" , "final_sale":""}]
    Nánari upplýsingar

    Tegund: Þvagfærastuðnings-mauk fyrir ketti

    Aðalinnihaldsefni: N-acetýl-glúkósamín (0,42%), beta-glúkanar úr geri (1%), L-tryptófan (12.500 mg/kg)

    Séreiginleikar: Stuðlar að heilbrigðu sýrustigi þvags, bindur fosfór og oxalat, róandi áhrif

    Upprunaland: Þýskaland

    Án: Viðbætts sykurs, laktósa

    Stærð: 50 g túpa

    Skammtur: Um 6 cm á dag (1 cm = 0,5 g)

    Hentar fyrir: Fullorðna ketti frá 1 árs aldri

    Innihaldsefni

    Samsetning: Plöntuafleiður, olíur og fita, ger (inniheldur 1% beta-glúkana), lindýr og krabbadýr (N-acetýl-glúkósamín 0,42%).

    Aukefni á hvert kg: L-tryptófan 12.500 mg. Andoxunarefni.

    Greining: Prótein 5,5%, fita 34,0%, trefjar 1,5%, aska 4,5%, raki 12,5%.

    Sendingarmáti

    Ókeypis heimsending

    Ef keypt er fyrir meira en 5.000 kr. er hægt að fá pöntunina senda ókeypis heim.

    Afhending vöru

    Allar vörur eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Komi pöntun inn fyrir kl 11:00 gerum við okkar besta til að pöntunin sé keyrð heim samdægurs.

    GimCat

    Þýskt gæðanammi fyrir ketti

    Vinsælt kattanammi framleitt hjá Gimborn á Þýskalandi síðan 1965. Krem, stangir, stökk snakk, hárboltakaka og vítamíntöflur sem kettir elska og treysta má.

    Skoða GimCat úrvalið
    GimCat

    1855

    Rótgróin saga

    Gimborn var stofnað árið 1855 af lyfjafræðingnum Heinrich von Gimborn í Emmerich am Rhein. Kattavörur hafa verið þróaðar hjá fyrirtækinu síðan 1965.

    DE

    Made in Germany

    Öll GimCat nammi er framleitt í verksmiðjunni í Emmerich am Rhein, ISO 9001 vottað og þróað í samstarfi við dýralækna.

    0

    Sykur og rotvarnarefni

    Engin viðbættur sykur, engin tilbúin litar eða bragðefni og engin rotvarnarefni. Bara vandað nammi með fiskolíum og jurtaolíum.

    40+

    Lönd og markaðsleiðtogi

    GimCat vörur eru seldar í meira en 40 löndum og í Þýskalandi er Gimborn markaðsleiðtogi í helstu flokkum kattasnakks.

    GimCat

    Af hverju GimCat?

    Saga GimCat nær aftur til ársins 1855 þegar lyfjafræðingurinn Heinrich von Gimborn stofnaði lyfjaverksmiðju í Emmerich am Rhein í Þýskalandi. Árið 1965 þróaði fyrirtækið fyrstu laktósalausu mjólkina fyrir kettlinga og hefur síðan þá sérhæft sig í kattanæringu sem er hönnuð í samstarfi við dýralækna og byggð á áratuga reynslu.

    Í dag er GimCat vinsælasta kattanammið í Þýskalandi og markaðsleiðandi í helstu flokkum. Úrvalið nær frá Every Day kremunum sem hægt er að gefa úr höndinni eða bæta í fóðrið, Expert Line premium kremunum fyrir hvert lífsskeið, Duo kremunum fyrir hárbolta og vítamín, Nutri Pockets stökku snakki með mjúkri fyllingu, sérstökum kattagrösum fyrir meltinguna, vítamíntöflum og Shiny Cat blautfóðri í dósum. Allt án viðbætts sykurs, rotvarnarefna eða tilbúinna litarefna.

    Skoða GimCat úrvalið
    Dýrfinnur