Þessi síða styður ekki vafrann þinn. Við mælum með að þú skiptir yfir í Edge, Chrome, Safari eða Firefox.

Frí heimsending um allt land af pöntunum yfir 5.000kr

Veldu ást í skálina

Gott fóður skiptir öllu máli

Karfan þín 0

Til hamingju! Pöntunin þín á rétt á fríum sendingarkostnaði. Bættu 5.000 kr í körfuna til að fá ókeypis heimsendingu.
Því miður, en við höfum ekki nóg af þessari vöru.

Paraðu við
Samtals Ókeypis
Skoða körfu
Sendingarkostnaður, skattar og afsláttarkóðar eru reiknaðir út við greiðslu

Pet Head Mucky Puppy Shampoo - 300ml

2.761 kr
(#COA90213A)

Þessi vara er aðeins til í verslun

Þessi vara er ekki í boði í heimsendingu. Þú getur sótt hana í eftirfarandi verslunum:

    Ef þú heldur áfram fer varan í körfuna en hana þarf að sækja í verslun. Hún sendist ekki heim.

    Mucky Pup Puppy Shampoo
    Mildt sjampó fyrir fyrstu baðferðir hvolpsins

    Hvolpahúð er þynnri og viðkvæmari en á fullorðnum hundi, sterkir hreinsiefnar geta þurrkað hana eða valdið ertingu. Mucky Pup er sérhannað fyrir hvolpa: mild formúla með náttúrulegum olíum og kamillu sem hreinsar án þess að taka rakann úr húðinni.

    Pear-ilmurinn er léttur og ferskur, ávaxtakenndur en ekki sætur. Hentar vel fyrir hvolpa sem eru að upplifa fyrstu baðin og þurfa rólegan, þægilegan ilm.

    Innihaldsefni Mucky Pup: rosehip-fræolía, prickly pear-fræolía, kamilla, aloe vera, jurtaprótein
    Hvað gerir hvert innihaldsefni
    Rosehip-fræolía
    Olía úr fræjum rósaberja, rík af A-vítamíni og línólsýru. Nærir unga húð og gefur feldinum mýkt án þess að þyngja hárið.
    Prickly pear-fræolía
    Léttur en rakaríkur náttúrulegur kjarni úr kaktusávexti. Heldur raka í hvolpaskinninu og kemur í veg fyrir að baðið þurrki feldinn.
    Kamilla (Chamomile Extract)
    Náttúrulegur róandi jurtakjarni sem dregur úr ertingu og kláða. Sérstaklega gott fyrir hvolpa sem geta verið viðkvæmir fyrir umhverfisáhrifum þegar þeir eru að venjast nýjum hlutum.
    Aloe Vera
    Mýkir húðina og styður náttúruleg verndarlög hennar. Tilvalið á viðkvæma húð.
    Jurtaprótein
    Bindst í hárið og styrkir það. Heldur feldinum mjúkum og viðheldur raka eftir baðferðina.
    Notkun
    1. Bleyttu feldinn vel með volgu vatni, ekki heitu.
    2. Berðu sjampó í feldinn og nuddaðu varlega í gegn. Forðastu augun og eyrun.
    3. Skolaðu mjög vandlega, hvolpahúð þolir ekki sápuleifar vel.
    4. Þurrkaðu með mjúku handklæði eða blásara á lágum hita.

    Fyrir fyrstu baðferð: byrjaðu á því að venja hvolpinn við vatnið án sjampós, þannig að upplifunin verði róleg. Stutt baðferð er betri en löng í byrjun.

    Loforð Pet Head
    • pH-stillt fyrir viðkvæma hvolpahúð
    • 100% vegan og dýratilraunalaust
    • Án parabena, súlfata og litarefna
    • Glúten- og hnetufrítt

    300 ml flaska. Heldur gæðum í 18 mánuði eftir opnun.

    Sendum samdægurs - pantaðu fyrir kl 11

    Frí heimsending um allt land fyrir pantanir yfir 5.000 kr.

    Auðvelt að skila/skipta - þín ánægja er í fyrirúmi

    Gæðastimpill Dýrabæjar - Engin málamiðlun á innihaldi

    Staða í verslunum
    Vefverslun
    Til á lager
    Til á lager
    Akranes, Smáralind, Akureyri, Kringlan, Krossmói, Spöng
    Uppselt
    [{"variant_id":"51514241810744" , "preorder":"false" , "final_sale":""}]
    Nánari upplýsingar

    Tegund: Mildt sjampó fyrir hvolpa

    Aðalinnihaldsefni: Rosehip-fræolía, prickly pear-fræolía, kamilla, aloe vera, jurtaprótein

    Séreiginleikar: Sérhannað fyrir viðkvæma hvolpahúð, mild formúla, kamilla róar húðina, pH-stillt

    Hentar fyrir: Hvolpa eldri en 12 vikna, einnig fullorðna hunda með viðkvæma húð

    Án: Parabena, súlfata, litarefna, glútens, hneta

    Vegan: Já, 100% vegan og dýratilraunalaust

    Stærð: 300 ml

    Ilmur: Pera (léttur ávaxtailmur, ekki sætur)

    Geymsluþol: 18 mánuðir eftir opnun

    Vörumerki: Pet Head, framleitt í Bandaríkjunum

    Innihaldsefni

    Water (Aqua), Cocamidopropyl Hydroxysultaine, PEG-150 Distearate, Sodium C14-16 Olefin Sulfonate, Aloe Barbadensis Leaf Juice, Aminomethyl Propanol, Chamomilla Recutita Flower Extract, Citric Acid, Cocoglucoside, Disodium EDTA, Ethylhexylglycerin, Glycerin, Glyceryl Oleate, Glycol Distearate, Hydrogenated Palm Glycerides Citrate, Hydrolyzed Vegetable Protein, Hydroxypropyl Cyclodextrin, Opuntia Ficus-Indica Seed Oil, Fragrance (Parfum), Polyquaternium-7, Polysorbate 20, Rosa Canina Seed Oil, Sodium Chloride, Sodium Lauroyl Sarcosinate, Sodium Methyl Cocoyl Taurate, Sorbitan Oleate Decylglucoside Crosspolymer, Tetrasodium EDTA, Tocopherol, Benzoic Acid, Benzyl Alcohol, Chlorhexidine Dihydrochloride, Iodopropynyl Butylcarbamate, Phenoxyethanol, Potassium Sorbate, Sodium Benzoate, Hexyl Cinnamal.

    Sendingarmáti

    Ókeypis heimsending

    Ef keypt er fyrir meira en 5.000 kr. er hægt að fá pöntunina senda ókeypis heim.

    Afhending vöru

    Allar vörur eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Komi pöntun inn fyrir kl 11:00 gerum við okkar besta til að pöntunin sé keyrð heim samdægurs.

    Pet Head
    100% Vegan
    Hárgreiðslustofa fyrir hunda Pet Head

    Snyrting
    með stæl
    og góðri lykt

    Sjampó, næring og þófasmyrsli með ávaxtalykt, framleitt af konunni sem skapaði Bed Head. Hárgreiðslustofu-gæði sem gera baðdaginn að skemmtilegasta deginum í vikunni.

    Skoða Pet Head

    Appelsína

    Fersk & sæt

    Bláber

    Mjúk & róandi

    Kókos

    Hitabeltisfíling

    Pera

    Létt & safarík

    Af hverju Pet Head?

    01

    Frá Bed Head ættinni

    Stofnað 2007 af Kyöru Mascolo, sömu konu og skapaði Bed Head hárvörurnar og á Toni & Guy salónakeðjuna.

    02

    100% vegan formúlur

    Ekkert dýraprófað, ekkert parabena, ekkert súlfata og ekkert DEA. Aðeins mildar, náttúrulegar formúlur fyrir feldinn.

    03

    pH stillt fyrir hunda

    Formúlur í hárgreiðslustofu-gæðum, sérstilltar að sýrustigi hundahúðar. Mildar nóg fyrir viðkvæma feldi en öflugar á skítugum tjásum.

    04

    Lykt sem endist

    Ávaxtalykt úr alvöru olíum sem loðir við feldinn dögum saman. Baðdagur sem eigandi og hundur hlakka til.

    Pet Head Made in the USA, 2007

    Hárgreiðslustofa
    fyrir loðna kúnnann

    Kyara Mascolo var búin að breyta hárgreiðsluheiminum með Bed Head og Toni & Guy þegar hún ákvað árið 2007 að dýrin ættu skilið sama dekur og fólk. Úr því varð Pet Head, hundasnyrtimerki sem hendir reglunum um leiðinlegt hundasjampó út um gluggann.

    Hver formúla er hönnuð eins og salónshárvara, blandað með ávaxtaolíum og náttúrulegum útdráttum sem láta feldinn glansa og loða af góðum ilmi. Allt er 100% vegan, laust við paraben og súlföt, og framleitt í Bandaríkjunum.

    Skoða Pet Head úrvalið
    Dýrfinnur