Beeztees Drykkjarbrunnur
Beeztees drykkjarbrunnurinn er stílhrein og notendavæn lausn til að auka vatns inntöku katta. Brunnurinn heldur 2.5L af vatni og er þráðlaus, ein hleðlsa dugar í 80 daga. Á brunninum er gluggi sem auðveldar okkur mannfólkinu að sjá hversu mikið vatn er eftir og hvort að þörf sé á að fylla á hann. Í brunninum er þrefallt síu kerfi sem heldur vatninu hreinu og fersku.
Þú getur valið mismunandi stillingar: tímastillir, stöðugt flæði á vatni eða með köflum, allt með kisuna þína í huga. Sérstök uppsetning brunnsins kemur í veg fyrir aukahljóð sem gerir kisu kleyft að drekka í ró og næði. Snjallstillingar brunnsins láta þig vita þegar að vatnsmagnið er orðið lágt og stöðu rafhlöðunnar, ef brunnurinn er vatnslaus þá slekkur hann á dælunni. Auðvelt er að taka brunninn í sundur til að þrífa og viðhalda.
Eiginleikar
- heldur vatninu fersku og hreinu
- val um sjálfvirka tímastillingu
- glær gluggi til að fylgjast með vatnsstöðu
- þrefsllt síukerfi til að tryggja ferskt vatn
- einstaklega þögull
26 x 17 x 17 cm – 2.5 lítrar







