Pet Remedy Travel Essentials Kit
Í pakkanum er það sem þarf til að róa dýrin á ferðalögum.
Pakkinn inniheldur.:
1x15ml Calming Spray
5 Calming Wipes
Calming Spray er notað heima við, á ferðalögum og annars staðar, eftir því sem þörf krefur.
Notist til að úða róandi efni í rúm dýranna, í hálsklútana (Pet Remedy Bandana), eða til að úða á fingurinn og bera efnið undir kjálka og á brjóstkassa dýranna.
Það þarf ekki mikið af efninu til að það nái tilgangi sínum og hvert skipti sem það er borið á, eða úðað í rúm eða búr, þá endist það 2 til 6 klst, mismunandi eftir dýrum.
Til að ná tengslum við kanínur þá úðið litlum skammti í rakan klút, eða á fingurinn og nuddið varlega í feld og húð. Þessi aðferð hentar líka vel fyrir önnur dýr, eins og hunda, ketti, smádýr og hesta. Úðið aldrei efninu beint á dýrin. Notið örlítin skammt af efninu fyrir smádýrin og fuglana þar sem þau hafa lítil lungu. Best er að úða efninu í klút og halda honum nálægt þeim. Fyrir hunda sem eru æstir í göngutúrum, þá er gott ráð að úða litlum skammti af efninu í hálsklút (Pet Remedy Bandana), sem hundurinn hefur í hálsól, eða úða litlum skammti á fingurinn og nudda ofarlega á brjóstkassann. Sama gildir fyrir hesta.
Það er líka sniðugt að úða smá skammti á buxnaskálmina í göngutúrum og halda hundinum við hæl.
Notið umhverfisvænu blautþurrkurnar til að nudda líkama dýranna og undir kjálka og á brjóstkassa. Þetta gagnast líka vel fyrir hestana. Ef dýrið er mjög æst og vill ekki láta nudda sig með blautþurrkunni, þá berið efnið á fingurnar og nuddið svo dýrið. Það er mjög gott ráð að nudda órórlega eða æsta hunda með blautþurrku áður en þeir fara í snyrtingu. Hafðu blautþurrku til taks í vasanum, eða í bílnum til að grípa til, ef þörf krefur.
Sendum samdægurs - pantaðu fyrir kl 12
Frí heimsending um allt land fyrir pantanir yfir 5.000 kr.
Auðvelt að skila/skipta - þín ánægja er í fyrirúmi
Gæðastimpill Dýrabæjar - Engin málamiðlun á innihaldi
Sendingarmáti
Ókeypis heimsending
Ef keypt er fyrir meira en 5.000 kr. er hægt að fá pöntunina senda ókeypis heim.
Afhending vöru
Allar vörur eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Komi pöntun inn fyrir kl 12:00 gerum við okkar besta til að pöntunin sé keyrð heim samdægurs.