Pet Remedy New Home Kit

4.995kr.

New Home Kit

Á lager

Vefverslun: Á lagerSmáralind: Ekki til á lagerKringlan: Ekki til á lagerGrafarvogur: Ekki til á lagerReykjanesbær: Á lagerAkranes: Á lager
Flokkar: Vörunúmer: 79977

Allt sem þú þarft til að taka við gæludýri inná heimilið, ásamt því að hjálpa til við að tengjast því og auðvelda þjálfun.
1 x 40ml Plug Diffuser
1 x 15ml Calming Spray
3 Individual Calming Wipes

Plug In Diffuser pakkinn inniheldur tæki sem stungið er í samband við rafmagn og flösku af Pet Remedy.
Hver flaska af Pet Remedy endist í allt að 8 vikur.  Dreifingarhæfni tækisins er allt að 60fm.
Pet Remedy er náttúruleg aðferð til að fást við óróa og stress í gæludýrum.  Hentar fyrir hunda, ketti, hesta, nagdýr og fugla.
Hvernig virkar Pet Remedy?  
Pet remedy er náttúruleg olía sem er unnin úr jurtum og virkar á náttúrulegan máta, til þess að róa dýrin án þess að slæva þau.  Efnið virkar strax á dýrin.
Pet remedy líkir eftir róandi taugaboðefninu GABA (Gamma Amino Butyric Acid) og hefur þannig áhrif á boðkerfi heilsans, til þess að róa taugarnar niður. 

Calming Spray er notað heima við, á ferðalögum og annars staðar, eftir því sem þörf krefur.
Notist til að úða róandi efni í rúm dýranna, í hálsklútana (Pet Remedy Bandana), eða til að úða á fingurinn og bera efnið undir kjálka og á brjóstkassa dýranna.
Það þarf ekki mikið af efninu til að það nái tilgangi sínum og hvert skipti sem það er borið á, eða úðað í rúm eða búr, þá endist það 2 til 6 klst, mismunandi eftir dýrum.
Til að ná tengslum við kanínur þá úðið litlum skammti í rakan klút, eða á fingurinn og nuddið varlega í feld og húð.  Þessi aðferð hentar líka vel fyrir önnur dýr, eins og hunda, ketti, smádýr og hesta.  Úðið aldrei efninu beint á dýrin.  Notið örlítin skammt af efninu fyrir smádýrin og fuglana þar sem þau hafa lítil lungu.  Best er að úða efninu í klút og halda honum nálægt þeim.  Fyrir hunda sem eru æstir í göngutúrum, þá er gott ráð að úða litlum skammti af efninu í hálsklút (Pet Remedy Bandana), sem hundurinn hefur í hálsól, eða úða litlum skammti á fingurinn og nudda ofarlega á brjóstkassann.  Sama gildir fyrir hesta.     
Það er líka sniðugt að úða smá skammti á buxnaskálmina í göngutúrum og halda hundinum við hæl.

Notið umhverfisvænu blautþurrkurnar til að nudda líkama dýranna og undir kjálka og á brjóstkassa.  Þetta gagnast líka vel fyrir hestana.  Ef dýrið er mjög æst og vill ekki láta nudda sig með blautþurrkunni, þá berið efnið á fingurnar og nuddið svo dýrið.  Það er mjög gott ráð að nudda órórlega eða æsta hunda með blautþurrku áður en þeir fara í snyrtingu.  Hafðu blautþurrku til taks í vasanum, eða í bílnum til að grípa til, ef þörf krefur.   

Frekari upplýsingar

Vörumerki