Þessi pakki inniheldur.:
1 x 200ml Calming Spray
1 x 15ml Refillable Mini Spray
1 x Plug Diffuser
12 Individual Calming Wipes
Calming Spray er notað heima við, á ferðalögum og annars staðar, eftir því sem þörf krefur.
Notist til að úða róandi efni í rúm dýranna, í hálsklútana (Pet Remedy Bandana), eða til að úða á fingurinn og bera efnið undir kjálka og á brjóstkassa dýranna.
Það þarf ekki mikið af efninu til að það nái tilgangi sínum og hvert skipti sem það er borið á, eða úðað í rúm eða búr, þá endist það 2 til 6 klst, mismunandi eftir dýrum.
Til að ná tengslum við kanínur þá úðið litlum skammti í rakan klút, eða á fingurinn og nuddið varlega í feld og húð. Þessi aðferð hentar líka vel fyrir önnur dýr, eins og hunda, ketti, smádýr og hesta. Úðið aldrei efninu beint á dýrin. Notið örlítin skammt af efninu fyrir smádýrin og fuglana þar sem þau hafa lítil lungu. Best er að úða efninu í klút og halda honum nálægt þeim. Fyrir hunda sem eru æstir í göngutúrum, þá er gott ráð að úða litlum skammti af efninu í hálsklút (Pet Remedy Bandana), sem hundurinn hefur í hálsól, eða úða litlum skammti á fingurinn og nudda ofarlega á brjóstkassann. Sama gildir fyrir hesta.
Það er líka sniðugt að úða smá skammti á buxnaskálmina í göngutúrum og halda hundinum við hæl.
Plug In Diffuser pakkinn inniheldur tæki sem stungið er í samband við rafmagn og flösku af Pet Remedy.
Hver flaska af Pet Remedy endist í allt að 8 vikur. Dreifingarhæfni tækisins er allt að 60fm.
Pet Remedy er náttúruleg aðferð til að fást við óróa og stress í gæludýrum. Hentar fyrir hunda, ketti, hesta, nagdýr og fugla.
Hvernig virkar Pet Remedy?
Pet remedy er náttúruleg olía sem er unnin úr jurtum og virkar á náttúrulegan máta, til þess að róa dýrin án þess að slæva þau. Efnið virkar strax á dýrin.
Pet remedy líkir eftir róandi taugaboðefninu GABA (Gamma Amino Butyric Acid) og hefur þannig áhrif á boðkerfi heilsans, til þess að róa taugarnar niður.
Notið umhverfisvænu blautþurrkurnar til að nudda líkama dýranna og undir kjálka og á brjóstkassa. Þetta gagnast líka vel fyrir hestana. Ef dýrið er mjög æst og vill ekki láta nudda sig með blautþurrkunni, þá berið efnið á fingurnar og nuddið svo dýrið. Það er mjög gott ráð að nudda órórlega eða æsta hunda með blautþurrku áður en þeir fara í snyrtingu. Hafðu blautþurrku til taks í vasanum, eða í bílnum til að grípa til, ef þörf krefur.