Veist þú hvernig er best að skipta um fóður?
Þegar skipt er um fóður er mikilvægt að gera það rétt og með vellíðan hundsins í forgrunni.
Best er að byrja á að blanda 25% af nýja fóðrinu við 75% af því gamla fyrstu tvo dagana, fara síðan í 50/50 næstu tvo daga og loks 75% nýtt og 25% gamalt áður en skipt er alveg yfir í 100% nýtt fóður – svo lengi sem allt gengur vel.
Hver hundur er einstakur og getur aðlögunin tekið mislangan tíma. Fylgstu vel með líðan og hægðum; ef maginn er viðkvæmur er gott að taka skref til baka og gefa breytingunni aðeins meiri tíma. Ef hundurinn tekur nýja fóðrinu vel má hins vegar halda rólega áfram.
Til að styðja enn betur við meltinguna mælum við með góðgerlum, sérstaklega fyrir viðkvæma maga. Góðgerlakrem frá Dr. Clauder’s inniheldur róandi kamillu og humla ásamt FOS og Yucca Shidigera sem hjálpa til við að byggja upp heilbrigða þarmaflóru og stuðla að jafnvægi í meltingu. Auðvelt er að gefa kremið daglega með fóðri eða eitt og sér. Einföld viðbót sem getur skipt miklu máli fyrir vellíðan hundsins.

Skrifa athugasemd