Þessi síða styður ekki vafrann þinn. Við mælum með að þú skiptir yfir í Edge, Chrome, Safari eða Firefox.

Frí heimsending um allt land af pöntunum yfir 7.000kr

Veldu ást í skálina

Gott fóður skiptir öllu máli

Karfan þín 0

Til hamingju! Pöntunin þín á rétt á fríum sendingarkostnaði. Bættu 7,000 kr í körfuna til að fá ókeypis heimsendingu.
Því miður, en við höfum ekki nóg af þessari vöru.

Paraðu við
Samtals Ókeypis
Skoða körfu
Sendingarkostnaður, skattar og afsláttarkóðar eru reiknaðir út við greiðslu

Hvolpurinn kemur heim

Klukka með hvolpi í miðjunni, augnablikin sem hvolpur þarf að fara út

Hvolpur tvöfaldar þyngd sína á fyrstu vikunum og er kominn í nánast fulla stærð innan árs. Beinin, liðirnir, þarmaflóran og það sem hann telur eðlilegt í heiminum, allt þetta er byggt inn í hann á þessum tíma. Þess vegna eru vikurnar eftir að hann kemur heim dýrmætasti tími sem þú færð með honum, og þær koma ekki aftur.

Áður en hann kemur: örmerki og skráning

Hunda á að örmerkja samkvæmt alþjóðlegum ISO staðli og skrá í viðurkenndan gagnagrunn innan tólf vikna aldurs. Á Íslandi er sá gagnagrunnur Dýraauðkenni. Þetta er lagaskylda og hún er oft misskilin.

Skráning í Dýraauðkenni er ekki það sama og skráning hjá sveitarfélaginu. Sveitarfélögin hafa hvert sínar samþykktir um hundahald og þær eru ólíkar, svo athugaðu reglurnar þar sem þú býrð.

Og atriðið sem skiptir mestu í raun: þú berð ábyrgð á að upplýsingarnar séu réttar. Örmerki með símanúmeri sem er hætt að virka finnur engan. Athugaðu símanúmerið þitt í Dýraauðkenni um leið og hvolpurinn er skráður.

Hvaðan hann kemur

Hvolpur sem fær að vera hjá móður og systkinum til átta vikna aldurs kemur með félagsfærni sem ekkert kemur í staðinn fyrir. Hann hefur lært að bíta ekki of fast og að lesa aðra hunda.

Hvolpur sem er tekinn fyrr, eða kemur einn og án sögu, þarf meiri vinnu í nákvæmlega þeim atriðum. Það er ekki dómur um hvolpinn, það segir þér bara hvað þið þurfið að æfa mest fyrstu vikurnar.

Skriflegur kaupsamningur er venjan og Hundaræktarfélag Íslands gefur út fyrirmynd að honum.

Félagsmótunarglugginn

Þetta er mikilvægasta staðreyndin um hvolpa og sú sem fæstir vita. Frá um þriggja vikna aldri og fram undir sextán vikur er heilinn óvenju móttækilegur fyrir nýju. Það sem hvolpurinn kynnist á því tímabili verður venjulegt fyrir lífstíð. Það sem hann kynnist ekki verður framandi og oft ógnvekjandi.

Glugginn lokast ekki eins og hurð, en hann þrengist hratt. Vikurnar frá átta til sextán, einmitt vikurnar sem hvolpurinn er nýkominn heim, eru því þær sem mestu ráða.

Gæði skipta meira máli en fjöldi. Ein róleg og góð reynsla af barni er meira virði en tíu sem eru of miklar fyrir hann.

Bólusetningar og glugginn: hvernig hvort tveggja gengur upp

Dýralæknirinn segir að halda hvolpi frá óþekktum hundum þar til bólusetningum er lokið. Það er rétt og því á að fylgja. En félagsmótun þýðir ekki að hitta óþekkta hunda. Hún þýðir að hvolpurinn kynnist heiminum, og nánast allt af því er hægt á meðan.

  • Berðu hann út og sittu með hann á bekk. Umferð, fólk, hjól, hávaði og kerrur, allt úr fanginu. Hann þarf ekki að snerta neitt, hann þarf að sjá og heyra.
  • Bjóddu þekktum og bólusettum hundum í heimsókn.
  • Láttu hann ganga á hörðu, á grasi, á möl, upp þrep og yfir rimlar.
  • Venja hann við hljóð heima: ryksugu, hárblásara, þvottavél og dyrabjöllu.
  • Láttu hann hitta fólk af öllum gerðum, með hatta, með staf, með skegg, með börn.

Hvolpur sem er hafður inni þar til bólusetningum er lokið missir stóran hluta af glugganum. Hann þarf ekki að hlaupa með ókunnugum hundum, hann þarf að sjá heiminn.

Það sem má ekki gerast á þessum vikum

Þrennt skilur eftir sig varanleg spor og allt er hægt að forðast.

Slæm reynsla sem endurtekur sig. Einn hræðilegur atburður getur mótað hund á þessu tímabili, og hann þarf ekki að vera dramatískur. Stór hundur sem hleypur yfir hann á göngu getur dugað.

Að vera neyddur að því sem hræðir hann. Hvolpur sem er dreginn að einhverju sem hann hörfar frá lærir bæði að það sé hættulegt og að hann ráði engu.

Að vera skammaður fyrir hræðslu. Það gerir hann hræddan og hljóðlausan í senn.

Reglan er einföld: hann ræður hraðanum, hann fær að horfa úr fjarlægð og hann fær að nálgast sjálfur. Ekki draga hann að því. Sittu í fjarlægð og leyfðu honum að horfa, hann kemur nær þegar hann er tilbúinn.

Fóðrið fyrstu vikuna

Spurðu ræktandann hvað hvolpurinn hefur fengið og haltu þig við það fyrstu vikuna. Hann er þegar að takast á við nýtt heimili, ný hljóð, nýtt fólk og engin systkini. Fóðurskipti ofan á það geta valdið niðurgangi, og þá er auðvelt að kenna nýja fóðrinu um eitthvað sem var í raun of hröð breyting.

Skiptin koma eftir viku, og þau taka sjö til tíu daga eins og allar fóðurbreytingar. Hvolpafóður er önnur uppskrift en fullorðinsfóður: meira prótein, meiri orka á gramm og stýrt hlutfall kalks og fosfórs. Fullorðinsfóður á hvolp gefur of hægan vöxt og skort.

Stór hvolpur á að vaxa hægt og jafnt. Of hraður vöxtur setur álag á liði og bein á meðan þau eru enn mjúk, og það tengist liðvandamálum sem koma fram löngu seinna og ganga ekki til baka. Markmiðið er grannur hvolpur, ekki stór hvolpur. Þú átt að finna rifin á honum alla leið. Og ekkert kalkbætiefni ofan á fullgilt hvolpafóður, það er ekki hjálp heldur áhætta.

Máltíðunum fækkar með aldrinum: fjórar á dag fram að um fjögurra mánaða aldri, þrjár frá fjögurra til sex mánaða, og tvær eftir það. Fastir matmálstímar eru líka húsþjálfun, því hvolpur skilar sér yfirleitt út um það bil hálftíma eftir að hann borðar.

Ertu ekki viss hvaða hvolpafóður hentar? Fóðurráðgjöfin okkar þrengir valið á tveimur mínútum, og þurrfóðrið fyrir hunda er allt á einum stað.

Svefninn er svarið oftar en fólk heldur

Hvolpur þarf sextán til tuttugu tíma svefn á sólarhring. Hvolpur sem bítur eins og villidýr klukkan sjö á kvöldin er nánast alltaf of þreyttur en ekki of orkumikill, og meiri leikur gerir það verra.

Ráðið er því óvænt: settu hann í hvíld. Búr, króaður staður eða lokað herbergi, í myrkri og í friði. Búr er svefnherbergi, staður þar sem hann er ekki truflaður. Það er aldrei refsing, því um leið og það er notað þannig hættir hann að vilja fara þangað. Rétt stærð er þannig að hann geti staðið upp, snúið sér við og legið teygður. Hundabúr í öllum stærðum finnur þú hér.

Húsþjálfun í stuttu máli

Hvolpur ræður við um það bil einn klukkutíma fyrir hvern mánuð sem hann er gamall, að hámarki. Tveggja mánaða hvolpur er því með tvo tíma í besta falli. Slys er ekki óhlýðni, það er of langur tími.

Farðu út á fimm augnablikum: strax eftir svefn, líka stuttan blund, strax eftir mat og drykk, strax eftir leik, á um það bil klukkutíma fresti þess á milli, og síðast fyrir svefn. Alltaf á sama stað, því lyktin þar minnir hann á hvað hann átti að gera. Bíddu þar til hann klárar og verðlaunaðu strax á staðnum.

Verði slys: hreinsaðu þegjandi og farðu oftar út. Ekki skamma eftir á, hann tengir skammirnar við þig og pollinn en ekki við það sem hann gerði fyrir tíu mínútum. Notaðu ensímhreinsi en ekki venjulegan hreinsi. Þú finnur enga lykt eftir venjulegan, en hann gerir það, og þá pissar hann þar aftur. Aldrei klór eða ammoníak, því ammoníak lyktar eins og þvag fyrir hund.

Pissudúkar hjálpa þar sem hvolpurinn kemst ekki auðveldlega út, til dæmis á fjórðu hæð í fjölbýli. Kemst hann auðveldlega út á klukkutíma fresti myndum við sleppa þeim, því þá ertu að kenna honum tvennt í einu.

Tanntaka og hvolpabit

Milli þriggja og sex mánaða missir hvolpurinn mjólkurtennurnar. Hann nagar meira, bítur fastar og er pirraðri en vikuna áður. Kuldi er það sem hjálpar: frosinn gulrótarbiti, blautt handklæði úr frysti eða nagdót sem hefur legið í frysti.

Allir hvolpar bíta og það hverfur. Það sem virkar er að leikurinn endar: um leið og tennur snerta húð stendurðu upp, gengur í burtu í tuttugu sekúndur og kemur svo aftur. Það sem virkar ekki er að æpa, sem æsir marga hvolpa enn meira, eða að halda kjaftinum aftur, sem kennir honum að hendur séu ógn.

Algengar spurningar

Hvenær á að örmerkja og skrá hvolp?

Innan tólf vikna aldurs, í Dýraauðkenni. Skráning hjá sveitarfélaginu er annað og kemur til viðbótar.

Má fara út með hvolp áður en bólusetningum er lokið?

Já, en ekki til að hitta óþekkta hunda. Berðu hann út og láttu hann sjá og heyra heiminn úr fanginu, og bjóddu bólusettum hundum sem þú þekkir í heimsókn.

Hvað á hvolpurinn að borða fyrstu vikuna heima?

Það sama og hann fékk hjá ræktandanum. Skiptu svo yfir á nýtt fóður á sjö til tíu dögum eftir fyrstu vikuna.

Hversu oft á hvolpur að borða?

Fjórum sinnum á dag fram að um fjögurra mánaða aldri, þrisvar frá fjögurra til sex mánaða, og tvisvar eftir það.

Tengt efni

Skrifa athugasemd

Dýrfinnur