Dýrabær Akureyri
Dýrabær á Akureyri er í Gamla Vínbúðinni við Hólabraut 16, húsi sem margir Akureyringar þekkja betur undir því nafni en heimilisfanginu. Verslunin þjónustar Akureyri og nágrenni.
Opnunartími
- Mánudaga til föstudaga
- 10.00 – 18.00
- Laugardaga
- 12.00 – 17.00
- Sunnudaga
- Lokað
Panta á netinu og sækja í verslun
Þú getur verslað á dyrabaer.is og valið að sækja pöntunina í Dýrabæ Akureyri. Pöntunin er að jafnaði tilbúin innan tveggja klukkustunda á opnunartíma og þú færð tilkynningu þegar hún bíður þín. Þannig sleppurðu við sendingarkostnað og færð vörurnar samdægurs.
Hvað færðu hjá okkur?
Í Dýrabæ Akureyri færðu vörur fyrir hunda, ketti, smádýr, fugla og fiska: þurrfóður og blautmat, nammi og nagbein, bætiefni, ólar og taumar, búr, rúm, leikföng og allt til feldhirðu. Starfsfólkið okkar þekkir vöruúrvalið og aðstoðar þig við að velja rétt fyrir dýrið þitt.