Umhverfisstefna
Virðing fyrir umhverfi okkar, dýrum og náttúru landsins er okkur hjartans mál og því leggjum við áherslu á að umgangast hvort tveggja af virðingu.
Þess vegna ætlum við að vera í fararbroddi með náttúrulegar, umhverfisvænar og aukefnalausar vörur fyrir gæludýr og jafnframt að uppfylla gildandi lög og reglugerðir á sviði umhverfismála.
Áherslur Dýrabæjar í umhverfismálum eru:
- að vera í fararbroddi með náttúrulegar, umhverfisvænar og aukefnalausar vörur fyrir gæludýr
- að uppfylla kröfur í lögum og reglugerðum um umhverfismál
- að flokka allan úrgang frá fyrirtækinu
- að nota eingöngu vistvæn hreinsiefni þar sem því verður við komið
- að vera meðvituð um umhverfismál almennt
- að kappkosta að hafa snyrtimennsku í fyrirrúmi og vera öðrum til fyrirmyndar í þeim efnum
- að vera dýravænn staður þar sem áhersla er lögð á vellíðan gæludýra í lifandi og skemmtilegu umhverfi
- að vera eigendum gæludýra til ráðgjafar um heilnæmar umhverfisvænar vörur, sem styðja við almennt heilbrigði þeirra og vellíðan
- að hvetja eigendur gæludýra til þrifnaðar í kringum dýrin og gæta þess að þau valdi ekki óþrifnaði með umgengni sinni
- að umhverfisstefnan og framkvæmd hennar sé sýnileg almenningi og verði þannig öðrum hvatning til að leggja sitt af mörkum, til að vernda umhverfið fyrir komandi kynslóðir.